Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Siðferði

Mann ekki betur en Mclaren menn hafi látið öllum íllum látum er bíll schumacers bilaði í monte carlo hér um árið, sé ekkert öðruvísi við að parkera biluðum bíl á miðri braut eða keyra á 20km í aksturslínu meðan tímataka er en í fullum gangi. ,,,,,,$"#$ eðli hjá MClaren mönnum það tekur hver skandalinn við af öðrum hjá þeim, hvað verður næst?
mbl.is Ökumenn McLaren færðir aftur á rásmarki fyrir hindrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær keppni

Keppnin í Albert Park var ótrúlega skemmtileg og fjörug, ekki höfðu mínir menn erindi sem erfiði því bílarnir þeirra biluðu. En mótið er rétt að byrja og hamagangurinn í nótt gefur góð fyrirheit um að þetta verði eitt af betri formúlu sumrum í langan tíma, mótum þar sem stöðu baráttan er til síðustu sekúndu, mótum þar sem allt getur gerst.

Það sem þó stendur upp úr í keppninni í Albert Park er samt þetta gras barð, stökkpallurinn það er stór furðulegt að svona barð sé á slíkum stað og má hreinlega þakka fyrir að ekki fór verr, þetta barð er ljótur blettur á keppninni þar sem það svo sannarlega var stór ógnun við öryggi ökumanna.

Keppnin í ár á eftir að verða gífurlega hörð, Hamilton hirti sigurinn í Albert Park eftir frábæran akstur


Spenna framundan

nú þegar fyrsta keppni formúlunar er framundan, og spennan er að byggjast upp fer maður að velta fyrir sér hvernig árið verður. miðað við hvernig æfingar undanfarið hafa verið er nokkuð ljóst að spennan verður mikil í mótum ársins.

Hamilton er líklegur til að hampa titlinum svo lengi sem bílinn klikkar ekki, ferrari og þá aðallega kimi koma væntanlega sterkir til leiks og má reikna með að kimi komi til að veita Hamilton harða keppni, Kubica virðist ætla að koma öflugur til leiks og mun að öllum líkindum veita Hamilton og Kimi harða keppni BMW bílinn er allavega sterkur. aðrir munu ekki blanda sér í toppinn nema þá helst að Massa verði stutt á eftir þessum 3.  Toyotan á eftir að valda vonbrigðum eitt árið enn. Red bull á eftir að koma á óvart og verður líklega í 4 sæti bílsmiða á eftir Mclaren, Ferrari og BMW. röð þessara 3ja bílaframleiðanda þarf þó ekki að vera í í þessari röð.

Ferrari vinnur titil bílasmiða og nýr heimsmeistari verður kringdur annað hvort Hamilton eða Kubica


lífsins alvara

12 ára gömul frænka mín sendi mér þessa sögu.
 

 Síðasta dag fyrir jól flýtti ég mér í stórmarkaðinn til að kaupa gjafirnar
sem ég komst ekki yfir að kaupa fyrr. Þegar ég sá allt fólkið þar, byrjaði
ég að kvarta í hljóði "Þetta á eftir að taka heila eilífð og ég á enn eftir
að fara á svo marga staði". Jólin eru alltaf að verða meira og meira
pirrandi með hverju árinu. Ég vildi að ég gæti bara lagst niður og farið að
sofa og vaknað svo eftir jólin. Allavega, ég kom mér í leikfangadeildina og
þar fór ég að skoða verðin, hugsandi hvort að börn leiki sér eitthvað með
svona dýr leikföng. Eftir smá tíma af leikfangaskoði þá tók ég eftir litlum
strák um 5 ára, sem hélt á dúkku upp við brjóstið sitt. Hann strauk hárið á
dúkkuni og virtist svo sorgmæddur. Svo snéri litli strákurinn sér að eldri
konu sem var við hliðina á honum "amma, ertu viss um að ég hafi ekki nógu
mikla peninga?" Gamla konan svaraði "þú veist að þú átt ekki nóg til að
kaupa dúkkuna elskan mín" Svo bað hún hann um að bíða í 5 mínútur eftir sér
á meðan hún skoðaði sig um. Hún fór fljótlega. Litli strákurinn hélt ennþá
á dúkkunni í hendinni. Ég labbaði til  hans og spurði hann hverjum hann
ætlaði að gefa dúkkuna. "Þetta er dúkkan  sem systir mín elskaði mest og
langaði svo mikið í fyrir jólin. Hún var svo viss um að jólasveinninn myndi
gefa sér hana. Ég sagði honum að kannski ætti  jólasveinninn eftir að koma
með dúkkuna til hennar og að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur. En hann
sagði við mig sorgmæddur "Nei jólasveinninn getur ekki gefið henni dúkkuna
þar sem hún er núna. Ég verð að gefa mömmu dúkkuna svo að hún geti gefið
henni hana þegar hún fer þangað". Augun hans voru svo sorgmædd meðan hann
sagði þetta.  "Systir mín er farin til þess að vera með Guð. Pabbi segir að
mamma sé líka að fara til Guðs mjög fljótlega, og ég hélt að hún gæti farið
með dúkkuna fyri mig og gefið systur minni hana". Hjartað mitt stoppaði
næstum því.  Litli strákurinn leit upp til mín og sagði " Ég sagði pabba að
segja mömmu að fara ekki alveg strax. Ég bað hann um að bíða þangað til að
ég kæmi heim úr búðinni" Svo sýndi hann mér fallega mynd af honum þar sem
hann var hlægjandi. "Ég vil líka að mamma taki þessa mynd með sér svo að
hún gleymi mér aldrei" "Ég elska mömmu mína og ég vildi óska að hún þyrfti
ekki að fara, en pabbi segir að hún verði að fara til að vera hjá litlu
systur minni". Svo leit hann aftur á dúkkuna með sorgmæddum augum, mjög
hljóðlátur.  Ég teigði mig hljóðlega í veskið mitt og tók smá pening upp og
sagði við strákinn "en ef við athugum aftur í vasan til að tékka hvort að
þú eigir nógan pening?" Allt í lagi sagði strákurinn "ég vona að ég eigi
nóg" Ég bætti smá af mínum peningum við án þess að hann tæki eftir því og
við byrjuðum að telja. Það var nógur peningur fyrir dúkkunni, og meira að
segja smá afgangur. Litli strákurinn sagði "Takk Guð fyrir að gefa mér
nógan pening. Svo leit hann á mig og sagði " Í gær áður en ég fór að sofa
þá bað ég Guð um að vera viss um að ég hafi nógan pening til þess að geta
keypt dúkkuna handa systur minni. Hann heyrði til mín" "Mig langaði líka að
eiga nógan pening til að kaupa hvíta rós  handa mömmu, en ég þorði ekki að
biðja Guð um of mikið, en hann gaf mér nóg til að kaupa rósina líka". Sko
mamma elskar hvíta rós". Nokkrum mínútum seinna kom gamla konan og sótti
strákinn.  Ég kláraði aðversla með allt öðru hugarfari, ég gat ekki hætt að
hugsa um litla strákinn. Svo mundi ég eftir frétt í blaðinu fyrir 2 dögum
síðan "maður keyrði drukkinn og klessti á bíl þar sem ung kona og lítil
stelpa voru í. Litla stelpan dó samstundis en mamman var í dái" Fjölskyldan
varð að ákveða hvort að það ætti að setja hana í öndunarvél eða ekki, af
því að hún unga konan myndi ekki vakna úr dáinu. Var þetta fjölskylda litla
stráksins?  Tveim dögum eftir að ég hitti litla strákinn, las ég í blaðinu
að unga konan hafi dáið. Ég gat ekki hamið mig og fór út í blómabúð og
keypti búnt af hvítum rósum og fór upp í líkhús þar sem fólk gat séð konuna
og og óskað sér í seinasta skipti áður en hún væri jörðuð. Hún var þarna í
kjól, haldandi á fallegri hvítri rós   með myndini af litla stráknum og
dúkkuna á brjóstinu. Ég fór grátandi og fannst líf mitt hafa breyst til
eilífðar. Ástin  sem þessi litli strákur hafði til mömmu sinnar og systur,
er enn þann dag í dag, erfitt að ímynda sér.
Og í einni svipan tekur drukkinn maður þetta allt frá honum


Lögreglan yfirgefur Hafnarfjörð

Nú er árferðið svo skemmtilegt og gott hér í hafnarfirði, lögbrotinn aldrei verið færri, innbrot og neysla eiturefna í sögulegu lágmarki, aldrei hefur það gerst áður að þessi mál séu þannig kominn í þessu friðsæla bæjarfélagi. En nú er svo komið að lögregla höfuðborgarsvæðisins sér sér ekki annað fært vegna óvenju mikilar friðsældar en að loka lögreglustöð bæjarins og hafa nú þegar lokað að kvöld og næturlagi, og það eina sem Bæjarstjóra hafnarfjarðar dettur í hug er að senda lögreglunni þakkarbréf og þakka þeim vel unnin störf.

 HVERJU áttu menn von á að myndi  gerast við sameiningu embætta??


Höfundur

Evert S
Evert S

Spurt er

Viltu fá Kolbrúnu Halldórsdóttur í ráðherra stól
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband