Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

Ekki er algert bann

  
Eftirfarandi er tilkynning frá flugmálastjórn:  
"16.06.2008

NOTAM no. C0071/08 HAFTASVÆÐI

NOTAM nr. C  0071/08
A) Staður: Skagatá           
B) Gildir frá:   0806162120   
C) Gildir til:   0806172200
D)
E)  Að beiðni sýslumannsins í Skagafirði er tímabundið haftasvæði
     fyrir almenna umferð 7NM radíus í kringum Skagatá pos 6607N02006W
     5000 fet og neðar. "

Eins og sjá má á skeyti þessu frá flugmálastjórn er ekki algert flugbann yfir Ísbirninum eins og fréttin ber með sér hins vegar má ekki fara niður fyrir 5000 fet,  svo ekki er hægt að kvarta undan flugumferð svo lengi sem vélarnar eru í 5000 fetum eða hærra, hvort þeir flugmenn sem þarna hafa komið hafi farið niður fyrir 5000 fetinn veit ég ekki. Enda er alsendis óvíst að þeim sé kunnugt um bannið Flugmálastjórn sendir svona bann út með almennum pósti og birtir það á internetinu á heimasíðu flugstoðar, á flugvöllum út á landi getur verið annsi erfit að komast á netið áður en maður fer í loftið.

 


mbl.is Flugbann ekki virt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilt náttúran

 

Þegar ég var yngri, ef ég man rétt um 1980-85 var sædýrasafn í hafnarfirði, þangað kom kona og sá ljóninn í sínu búri henni fannst þau frekar sæt, svo hún stakk hendinni inn í búrið til að klappa litlu kisu, hvernig haldið þið að ljónið hafi brugðist við?

Jú það fékk sér smakk, þetta er sönn saga.

Ef þið haldið að ljón séu grimm, þá eru þau gæludýr miðað við bjössa, bjössi er eitt grimmasta dýr jarðar, en eins og öll dýr jarðarinnar bregst bjössi verstur við ef honum er ógnað, og þegar hann er svangur og vantar mat, þess á milli er hann rólegur.

ég tel að það sé allveg ljóst að bjössa finnst sér verulega ógnað þegar menn ætla að svæfa hann og troða honum í búr, og svo verður hann geymdur í dýragarði í köben ásamt öllum hinum sorgmæddu dýrunum sem hafa verið svift frelsi sínu bara til að hímast í búri.

Tel nánast víst að bjössi vilji frekar fá eina kúlu í höfuðið heldur en að hímast í búri það sem eftir er af ömurlegri ævi hans.

Verði honum sleppt aftur út í vilta náttúruna mun hann sjálfsagt jafna sig á að hafa verið haldið sofandi í einhverja daga jafnvel vikur og geymdur í búri, en það er ekkert grín að geyma svona dýr í búri og flytja það langar leiðir í skipi, og er áhættan slík að við næstum öll önnur mannana verk myndu men telja áhættuna of mikla og hætta við framkvæmdir.


mbl.is Reynt að ná birninum lifandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svekktur

Ég er frekar svekktur með það hvernig þessi leikur endaði, þó svo ég hefði staðið með tyrkjum í þessum leik langaði mig að sjá tékka jafna í 3-3 og fá en meir dramatík í leikinn. Tyrkirnir búnir með skiptingar og búnir að missa markmannin útaf með rautt, það hefði verið stórkostlegt að sjá vítaspyrnukeppnií þeirri stöðu. Sjá hvað útileikmaður tyrkja hefði gert í markinu við þær aðstæður.

Annars skiptir engu hvaða lið komast áfram Hollendingarnir vinna þau öll og verða EM


mbl.is Ótrúlegur lokakafli tryggði Tyrkjum sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Getum verið stolt

Við getum verið stolt af landsliðinnu eftir leikinn í dag, þeir voru allveg við það að slá út annars ágætt lið makedóníu, hafa verður það í huga að 6 marka sigur gegn þessu liði er virkilega góður árangur, það skemmdi vissulega fyrir að liðið tapaði fyrir makedóníu með 8 mörkum sem varð til þess að ísland kemst ekki á HM, en þeir voru grátlega nærri.

Frábær sigur í dag


mbl.is Guðmundur Guðmundsson: Ekki hægt að kvarta yfir frammistöðu liðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefði gengið ef....

Ef þeir hefðu spilað jafnvel allan leikin og síðustu 5min seinnihálfleiks, ef Guðmundur Guðmundsson hefði farið sjálfur í hornið, Einar Þorvarðar í markið, Kristján Arason í skyttuna ásamt Alfreð Gísla
mbl.is Ísland kemst ekki á HM
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STÓRA EINELTIS MÁLIÐ...

Eins og sjá má af þessari frétt á heimasíðu hafnarfjarðarbæjar sést að hafnarfjarðarbær virðist styðja einelti

http://www.hafnarfjordur.is/hafnarfjordur/nanar_forsidu/?cat_id=3&ew_0_a_id=9581

Á þeim tímum sem baráttan við einelti er slík að allt er kallað einelti þá er með ólíkindum að kratarnir hér í hafnarfirði styðji og mæli með einelti, telji það jafnvel fyndið, svo fyndið að þeir setja einelti í sinni mynd sem hamingju og ánægju frétt á heimasíðu bæjarins. þó svo hér sé um að ræða skólastjóran sem lagður er í einelti af starfsmönnum sínum, þá á ekki að mæra það á þennan hátt, hvaða fordæmi eru kennarar Áslandsskóla og starfsmenn hafnarfjarðarbæjar(sem sjá um það efni sem er á heimasíðu bæjarins) að sína börnum í bænum, nemendum Áslandsskóla sem og annara skóla, þetta er mjög slæmt fordæmi.


Magnað

Venjulega segja þessir olíu furstar að þurft hafi að hækka vegna veikingar krónunar fáir ekki nóg af dollurum fyrir krónu, en núna er dollarinn orðin svo veikur að það þurfti að hækka lítran um heilar 6 krónur.

Þetta gengur ekki upp því ef þarf að hækka við veikingar krónunar gangvart dollar hlýtur að vera full ástæða til að lækka lítran þegar dollarin veikist gangvart krónunni.

Verð að segja að þetta útspil olíufélagana er með ólíkindum og getur einfaldlega aðeins skrifast sem rán um hábjartan dag.

LÆKKIÐ VERÐIÐ STRAX UM 12.KRÓNUR ekki halda að fólk sé heimskt.


mbl.is Eldsneytisverðhækkun vegna veikrar stöðu dals og hás olíuverðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óeðlilegt að valda slíku óhappi

Atvikið í mónakó er ekki hægt að bera saman við þetta, þar sem atvikið ímónakó var keppnisatvik þar  sem ökumaður missir stjórn á bíl sínum með allt í botni og við að berjast við að ná stjórn aftur lendir hann aftan á sutil, atvikið í dag gerist inn á viðgerðasvæði afþví að hamilton og rosberg virða ekki rauðaljósið og fyrir það er þeim refsað og meiga þeir í raun þakka fyrir hve væg refsingin er aftanákeyrsla á viðgerðasvæði er eitthvað sem á ekki að geta átt sér stað og er með ólíkindum að þetta hafi gerst og vekur upp spurningar hvort hamilton og rosberg hafi það sem til þarf til að fá að keppa í F1.


mbl.is Hamilton biðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alltaf þarf Hafnfirðinga til

Það er sama hvað gengur á alltaf þarf á endanum að kalla til hafnfirðinga til að bjarga málunum. Og er ég sannfærður um að Hanna Birna muni koma og reisa Reykjavík við úr rústunum sem reykvíkingar hafa lagt hana í.

Enda er Hanna Birna Hafnfirðingur og mun örugglega stýra borginni betur en nokkur annar hingað til.


mbl.is Hanna Birna verður borgarstjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það verður erfitt hjá ferrari

Mér sýnist að þetta ætli að verða erfið og löng helgi hjá Ferrari, ég reikna með að þetta verði ekki Ferrari helgi. einnig á ég ekki von á að Alonso klári þessa helgi með stæl, hann mun næstum öruggt ekki enda ofar en í 8 sæti ef hann þá klárar keppnina. Ég spái því að helginn verði slæm og hamilton vinni þetta mót, einng ætla ég að reikna með að kubica komist á pall á eftir Kimi.
mbl.is Hamilton á ráspól í Montreal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Evert S
Evert S

Spurt er

Viltu fá Kolbrúnu Halldórsdóttur í ráðherra stól
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband